Samtök hernaðarandstæðinga
Viðburðir
Efni
Leit í efni á vefnum
BREYTA
Ályktun SHA vegna hernaðarflugs Rússa
Samtök hernaðarandstæðinga mótmæla flugi rússneskra herþotna við strendur Íslands. Æfinga- og eftirlitsflug á borð við þetta skapar hættu fyrir almenna flugumferð og þjónar engum hagnýtum tilgangi. Enn meiri hætta skapast síðan þegar NATO-ríkin senda herþotur sínar til móts við rússnesku þoturnar og fylgja þeim eftir í fluginu. Skemmst er að minnast að slík loftfimleikaæfing endaði með ósköpum fyrir nokkrum árum þegar bandarísk njósnaflugvél rétt undan ströndum Kína rakst á kínverska þotu sem hafði verið send til að elta hana uppi. Samtök hernaðarandstæðinga árétta andstöðu sína við umferð allra vígtóla í íslenskri lögsögu, hverrar þjóðar sem þau kunna að vera. Ferð rússnesku vélanna er dapurlegur endurómur frá tímum kalda stríðsins, en kemur því miður ekki á óvart enda virðast ráðamenn víða um lönd kappkosta að blása lífi í glæður þess. Má þar nefna þá viðleitni Bandaríkjastjórnar að koma sér upp gagneldflaugakerfi og virðingarleysi stjórnvalda í Bandaríkjunum og Rússlandi gagnvart ýmsum afvopnunarsamningum. Þá má á það minna að hernaðarbandalagið NATO hefur á síðustu árum orðið sífellt árásargjarnara og uppivöðslusamara. Íslenskum stjórnvöldum væri sæmst að vinna að framgöngu friðar á alþjóðavettvangi í stað þess að ríghalda í gamla heimsmynd. Síst af öllu eiga Íslendingar að hafa frumkvæði að heræfingum hér á landi, sem augljóslega munu leiða af sér enn tíðari ferðir herflugvéla hér við land - boðinna jafnt sem óboðinna. 17. ágúst 2007
Fréttir um málið:
FRÉTTATILKYNNING frá utanríkisráðuneytinu 18.8.2007.
Rússneskar sprengjuflugvélar við Íslandsstrendur.
Vísir, 17. ágú. 2007 18:30
Rússneskar vélar í íslenskri lofthelgi.
mbl.is 17.8.2007 18:52
Rússar flugu upp að Íslandi í nótt.
RÚV 17.08.2007 19:18
Rætt við sendiherra Rússa.
Fréttablaðið, 18. ágú. 2007 05:45
Samtök hernaðarandstæðinga mótmæla flugi rússneskra herþota við strendur Íslands.
mbl.is 18.8.2007 10:54
Flugi Rússa mótmælt.
Vísir, 18. ágú. 2007 11:02
Rússar í hringferð um landið.
Vísir, 18. ágú. 2007 12:04
Tilkynning utanríkisráðuneytis varðandi flug rússneskra herflugvéla.
mbl.is 18.8.2007 12:05
Ráðherra: Rússaflug braut ekki gegn Íslendingum.
RÚV 18.08.2007 12:23
Flugi Rússa við strendur Íslands mótmælt.
RÚV 18.08.2007 12:29
Óþarfi að búa til rússagrýlu.
Vísir, 18. ágú. 2007 18:51
Umræður á blogginu:
http://eyjan.is/silfuregils/2007/08/18/herna%c3%b0arbrolt/
http://polites.blog.is/blog/polites/entry/289338/#comments
http://truflun.net/oligneisti/2007/08/18/er-egill-helgason-bila%c3%b0ur/
Ómar Ragnarsson:
AFTUR KOMIÐ 1910?
Færslur
Blog
Blog
Pages
Pages
About
About
Features
Features
Nectar Sliders
Nectar Sliders
Gorgeous Design
Gorgeous Design
Love At First Sight
Love At First Sight
Full Width Slider
Full Width Slider
Parallax Slider
Parallax Slider
Robust Power
Robust Power
Show Off Your Work
Show Off Your Work
Multiple Instances
Multiple Instances
Pages
Pages
Header Layouts
Header Layouts
Shortcode Overview
Shortcode Overview
5
6
7
8
9
10
11
12
13
Síða 9 af 104.