Sjálfbærni – nýtni – friður
Haustið er tími uppskerunnar og tími breytinga. Föstudagskvöldið 30. október njótum við ávaxta sumarsins með eftirminnilegum hætti og hugum að sjálfbærni og nýtni með frið í huga. Bræðurnir, Friðrik og Gísli Hrafn Atlasynir sjá um matseldina með ilmríkri aðstoð Systu og Elvars í Friðarhúsi að ógleymdri móður þeirra bræðra, henni Unni. Margt af því góðgæti sem borið verðurá borð var ræktað í sumar af ást og alúð af pabba bræðranna, honum Atla.
• Slátur hins alþjóðlega friðarsinna. Blóðmör og lifrarpylsa á gamla góða mátann með kryddi í tilveruna.• Sviðasulta eða hægelduð svið í eigin hlaupi að hætti Elvars í Friðarhúsi.• Kryddlegin hjörtu að hætti Systu í Friðarhúsi.• Draumur grænmetisáhugamannsins og friðarsinnans: Nýupptekið og hægeldað rótargrænmeti, kryddað af kúnst og friði.• “Appelsína norðursins” (gulrófan) maukuð í ljúffenga stöppu.• Nýupptekin jarðepli úr bakgörðum friðarsinna (fjarri Sámi frænda)• Rabbarbaraeftirréttur lífsins að hætti Unnar ásamt ljúfmöluðu kaffi.
Að borðhaldi loknu mun rithöfundurinn Bjarni Bernharður lesa upp úr magnaðri nýútkominni bók sinni & Fjólurnar flytja nokkur lög en þær skipa Hafþór Ólafsson, Guðmundur Guðmundsson, Margrét Arnardóttir, Sigurjón Daðason og Ævar Örn Sigurðsson.
Sest verður að snæðingi kl. 19. Verð kr. 2.000.